02.01.2012 14:51
Gleðilegt nýtt ár:-)
Þá er nýtt ár gengið í garð og við hjá Hestamennt þökkum hjartanlega öllum þeim sem áttu samleið með okkur á síðasta ári fyrir góðar stundir


Við hefjum nú nýtt spennandi ár og eins og áður verða margvísleg námskeið í boði hjá okkur. Þau helstu eru:
- Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga
- Reiðnámskeið fyrir unglinga
- Reiðnámskeið fyrir fatlaða í samstarfi við hestamannafélagið Hörð
- Einkatímar fyrir fullorðna sem langar til að kynnast hestamennsku
- Leiðtoganámskeið fyrir börn og unglinga
- Spennandi liðsheildarnámskeið fyrir vinnustaði og starfsmannafélög (ath. ekki farið á hestbak en unnið með hesta í taumi)
Við biðjum áhugasama um að hafa samband við okkur sem fyrst þar sem fá pláss eru í boði á hverju námskeiði og þau fljót að fyllast.
Sendið okkur því línu í tölvupósti á hestamennt@hestamennt.is eða hringið í okkur í síma 8996972 eða 8970160.
Við óskum ykkur farsældar og hamingju á nýju ári og hlökkum til að vinna með ykkur!


Skrifað af Þórhildi
Flettingar í dag: 44
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 196
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 60098
Samtals gestir: 17150
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:13:46
